Stóðhestasýning á World Tolt

  • 14. desember 2012
  • Fréttir
Stóðhestasýning á World Tolt

Tuttugu stóðhestar munu koma fram í sérstakri stóðhestasýningu á heimsbikarmótinu World Toelt og hefur listi yfir þá verið birtur á vefsíðu hátíðarinnar. Þar á meðal eru efnilegir hestar sem hafa yfirgefið Ísland á árinu. Þar má nefna prúðleiksfolana Guðberg frá Skagaströnd, Fák frá Horni I og Vaðal frá Njarðvík. Önnur kunn nöfn eru á listanum, þ.á.m. Feykir frá Háholti og Kraftur frá Bringu. Hér má sjá lista stóðhestanna sem fram koma:

 
Abel frá Sauðárkróki
Askur fra Solholt
Avaldi fra Garði
Baldur fra Bakki
Fákur frá Horni 1
Feykir frá Háholti
Fimur fra Egholm
Gneisti från Lermansbo
Guðberg frà Skagaströnd
Hektor från Bråtorpsgård
Hrekkur från Hålåsen
Kiljan fra Katulabo
Kostur fra Dalur
Kraftur frá Bringu
Léttir fra Hellesylt
Silfurgeisli frá Fellskoti
Sólnes frá Ytra-Skörðugili
Spyrnir frá Sigríðarstöðum
Teigur vom Kronshof
Vár frá Vestra-Fífilholti
 
Heimsbikarmótið innanhúss fer fram í Óðinsvéum Danmörku dagana 22. og 23. febrúar nk. Sjá nánar hér á vefsíðu mótsins.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link