Stóðhestaveislan 2022

  • 18. mars 2022
  • Fréttir
Síðustu forvöð að skrá í Stóðhestabókina

Loksins eftir tveggja ára hlé verður haldin stórsýning stóðhestanna – Stóðhestaveislan 2022 – Stærsti og vinsælasti innanhúss viðburður hrossaræktarinnar á Íslandi.
Einstakur viðburður með frábærum hrossum. Ekki láta þessa veislu framhjá þér fara og mættu í Ölfushöllina, laugardagskvöldið, 9. apríl.

Stóðveislan verður haldin í samstarfi við Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum en lokamót deildarinnar verður fyrr um daginn og Stóðhestaveislan síðan um kvöldið.

Upplýsingar um miðasölu og aðgangseyri verða auglýst síðar.

Eiðfaxi vill einnig minna á að það eru síðustu forvöð til að skrá stóðhestinn þinn í Stóðhestabókina en skráningarfrestur er til 20. mars. Stóðhestabók Eiðfaxa er sannkölluð biblía hvers hrossaræktanda, enda eru jafnan vel á þriðja hundrað stóðhesta kynntir í bókinni, allt frá margreyndum gæðingafeðrum yfir í vonarstjörnur framtíðarinnar. Skráning berist á netfangið [email protected]

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link