Stofnverndarsjóður veitir styrki
Samkvæmt nýjustu fundargerð fagráðs frá 29. desember verður tveimur verkefnum úthlutað styrk úr Stofnverndarsjóði íslenska hestsins. Í ágúst úthlutaði Fagráð 3.010.000 kr og bárust þrjár umsóknir vegna desemberúthlutunar en voru þá 4.340.000 kr. eftir til úthlutunar á árinu 2023. Þau verkefni sem hlutu styrk að þessu sinni voru annars vegar á vegum Heiðrúnar Sigurðardóttur og hins vegar á vegum Matís.
Fyrri úthlutunin fór til Heiðrúnu Sigurðardóttir fyrir lokahluta doktorsverkefnis hennar sem miðar að því að auka þekkingu á erfðafræðilegum grunni gangtegunda íslenska hestsins; hvaða þættir ráða eða hafa áhrif á ganghæfni og gæði gangtegundanna.
Seinni úthlutunin fór til Matís OHF til frekari framþróun á erfðagreiningu í þágu íslenska hestskynsins. Matís hlaut einnig styrk í ágúst fyrir sama verkefni.
Hlutverk stofnverndarsjóðs er að veita styrki til þróunar- og rannsóknarverkefna í hrossarækt. Í reglugerð sjóðsins er kveðið á um að verkefnin skulu stuðla að viðhaldi verðmætra eiginleika í íslenska hrossastofninum, verndun erfðafjölbreytileika stofnsins og/ eða auka þekkingu á stofninum og útbreiðslu hans.
Hægt er að lesa meira um úthlutanirnar í fundargerð Fagráðs HÉR.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH