Stökkið enn í barnaflokki

  • 20. október 2012
  • Fréttir
Stökkið enn í barnaflokki

Umræður á Landsþingi LH voru heitar þegar tvær nefndir, Æskulýðsnefnd og Keppnisnefnd, tóku fyrir þingskjal 43 sem fjallar um að fella stökk úr gæðingakeppni barnaflokks. Skemmst er frá því að segja að tillagan var felld.

Æskulýðsnefnd taldi það ekki vera í verkahring nefndarinnar að taka ákvörðun um breytingu á keppnisreglum. Hins vegar hafi tillagan verið mikið rædd í nefndinni og sendi hún frá sér áskorun til stjórnar LH. Þar kemur fram að brýn nauðsyn sé að breyta umgjörð barnaflokks til að auka öryggi knapanna – frekar verði tekið tillit ti útfærslu sýninga en hraða. Vildi nefndin að keppnisnefndi yrði falið að taka keppnisreglur í barnaflokki til endurskoðunar t.d. með því að fella stökk úr úrslitakeppni.

Keppnisnefndin vildi hins vegar ekki hrófla við stökksýningum í barnaflokki og var einhuga ákvörðun nefndarinnar að fella tillögu 43. Það var skoðun nefndarinnar að reglur í barnaflokki stæðust tímans tönn, að á stökki sæist einna glöggast hvernig reiðmennska barna væri. Hins vegar benti formaður nefndarinnar á að endurskoða þyrfti graðhestareið og stangarreið í barnaflokki. Umræða um stangarnotkun væri nauðsynleg.

Þingið samþyktki því að fella þingskjal 43 og samþykkti ennfremur áskorun Æskulýðsnefndar.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link