,,Stolt og spennt fyrir framhaldinu“
Jóhanna Margrét Snorradóttir landsliðskona í Hestaíþróttum mynd: LH
Jóhanna Margrét Snorradóttir kemur inn í landsliðshópinn að nýju en hún var síðast í landsliðshópnum árið 2019. Jóhanna er 25 ára gömul og er í Hestamannafélaginu Mána.
Blaðamaður Eiðfaxa heyrði í henni nú þegar valið hefur verið kunngjört og spurði hana nokkurra spurninga.
Hvernig tilfinning er að fá kallið í landsliðshópinn að nýju? ,,Það er bara mjög skemmtilegt, ég er stolt af því að vera í hópnum og er spennt fyrir framhaldinu. Ég var nú ekkert sátt við það að vera ekki í hópnum síðast og það að koma aftur inn sýnir kannski að það hafi ekki verið nauðsynlegt. En ég er fyrst og fremst stolt og ánægð.
Jóhanna Margrét hefur náð frábærum árangri í ár og þá sérstaklega á hinum gráa og fasmikla Bárði frá Melabergi sem hún stefnir með á HM í Herning á næsta ári í tölt og fjórgang. Hæstu einkunnir þeirra á árinu eru 7,63 í fjórgangi og 8,23 í tölti. En mun hún tíma að fara með þennan gæðing erlendis? ,,Já maður verður að stefna að því, ef ég kemst í liðið myndi ég láta vaða. Auðvitað væri gaman að hafa hann lengur en ef tækifærið gefst að keppa fyrir Íslandshönd myndi maður kýla á það.“
Eiðfaxi þakkar Jóhönnu fyrir spjallið og óskar henni velgengni í vetur og á næsta tímabili.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH