Stórkostlegur árangur Auðsholtshjáleigu-

  • 21. nóvember 2011
  • Fréttir
Stórkostlegur árangur Auðsholtshjáleigu-

Fjölskyldan að Auðsholtshjáleigu voru heiðruð sem ræktunarmenn ársins 2011 á ráðstefnunni Hrossarækt 2011 sem Fagráð í hrossarækt stóð fyrir á laugardaginn.

Í ár hefur ræktun Auðsholtshjáleigu sýnt og sannað gæði hrossaræktunnar sinnar með því að hljóta bæði Sleipnis- og Glettubikar fyrir efstu heiðursverðlaunahross fyrir afkvæmi.

Sleipnisbikarinn hlutu þau í sumar fyrir Gára frá Auðsholtshjáleigu. Árangur Gára er mikill en hann hlaut í kynbótamat 128 stig. Gári er aðeins 13 vetra gamall og fæddust fyrstu afkvæmi hans 2003. Staða hans til heiðursverðlauna var því feikna sterk og afgerandi, þeir sem næstir honum stóðu til heiðursverðlauna á Vindheimamelum voru með 121 stig.

Ennfremur komu þrjár af þeim átta hryssum sem hlutu heiðursverðlaun í ár, úr ræktun búsins. Efst varð  Gígja frá Auðsholtshjáleigu með 127 stig í kynbótamati, önnur Trú frá Auðsholtshjáleigu með 126 stigog sú þriðja er Vordís frá Auðsholtshjáleigu með 124 stig.

Þetta eru þó ekki einu stórkostlegu afrek hrossa frá Auðsholtshjáleigu í ár. Alls voru 22 hross kennd við Auðsholtshjáleigu sýnd til kynbótadóms á árinu og hlutu tólf þeirra 8,00 eða hærra í aðaleinkunn. Átta þeirra voru sýnd Landsmóti og varð Hrafnar frá Auðsholtshjáleigu í 5. sæti í flokki 4 vetra stóðhesta og Arnoddur frá Auðsholtshjáleigu í 2. sæti í flokki 6 vetra stóðhesta. Gígjar frá Auðsholtshjáleigu, albróðir Gígu, hampaði einnig 1. verðlaunum fyrir afkvæmi á Landsmótin. Þá fór Arnoddur frá Auðsholtshjáleigu til Austurríkis og keppti í flokki 6 vetra stóðhesta á kynbótasýningu Heimsmeistaramótsins sem hann sigraði með glæsibrag og var það þriðja heimsmeistaramótið í röð sem stóðhestur frá búinu stendur uppi sem sigurvegari.

Til hamingju Auðsholtshjáleiga!

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link