Stórmót Geysis
„Stórmót Geysis er gæðingakeppni og verður haldið um verslunarmannahelgina 3-5 ágúst 2012. Keppt verður í A-flokki gæðinga, B-flokki gæðinga, A-flokki gæðinga áhugamanna, B-flokki gæðinga áhugamanna, ungmennaflokki, unglingaflokki og barnaflokki. Einnig verður keppt í opnum flokki í tölti T1. Í öllum flokkum verður einn inná vellinum í einu og hver með sitt prógram.
Skráning fer fram mánudagskvöldið 30.júlí kl 19:00-22:00 í síma 8637130 / 8648797 / 6592237.
Skráningargjald 4000kr og greiðist um leið og skráð er.
Ræktunarbú á laugardagskvöldi, ef einhver hefur áhuga á því að koma með ræktunarbú á stórmótið endilega hafið samband við Vignir í síma 8943106.“
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH