Stormviðvörun á keppnissvæðinu
Horft yfir keppnissvæðið frá tjaldi blaðamanna fyrir stundu.
Það hefur verið mikill hiti á keppnissvæðinu þar sem HM2013 fer fram, í austurhluta Berlínar. Um hádegisbilið (kl. 10 á íslenskum tíma) var 31 stiga hiti. Fjórgangur er aftur hafinn eftir hádegishlé.
Fyrir hálftíma var gefin út stormviðvörun hafa starfsmenn móthaldara og sölubása unnið að festa tjöld sín betur.
Viðvörunin gildir næsta klukkutímann en mótshaldarar eru bjartsýnir á að hann fari framhjá mótssvæðinu.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH