Stórsýning Fáks
Flottir hestar, glaumur og gleði verða á Stórsýningu Fáks sem haldin verður í reiðhöllinni í Víðidal nk. laugardagskvöld.
„Þar munu fyrrverandi landsmótssigurvegarar ásat ungum glæsihrossum þeysa um höllina enda koma Skessurnar úr Borgarfirði og pilsaþytast um salinn. Unglingarnir munu sýna flott atriði, afkvæmahópar stóðhesta og kynbótahross. Einnig verður einvígi aldarinnar þar sem stærstu með stærstu “show”kóngum Íslandshestaheimsins sem etja kappi. Dúndrandi fjör og Bjórkvöld á eftir (frítt inn),“ segir í tilkynningu.
Sýningin hefst kl. 21:00 en húsið opnar kl. 20:00.
Miðasala við innganginn en einnig er hægt að nálgast miða í Reiðhöllinni á skrifstofutíma á föstudaginn.
Miðaverð á Stórsýninguna er 2.500 kr.
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing
Allir á bak hlýtur samfélagsstyrk Krónunnar