Stórveisla hestamanna á Akureyri

  • 13. apríl 2012
  • Fréttir
Stórveisla hestamanna á Akureyri

Stórskemmtileg dagskrá er í boði á Fákum og fjöri sem fer framá morgun í TopReiterhöllinni á Akureyri en sýningin hefst kl. 18:

 
„Skjóttir stóðhestar verða þarna áberandi en þeir Ljóni frá Ketilsstöðum, Glitnir frá Eikarbrekku og Bestur frá Lýtinsstöðum munu koma fram sem og Gandálfur frá Selfossi.  Eldjárn frá Tjaldhólum leggur til ungviði í sýninguna og að sögn þeirra sem til þekkja þá eru þessi hross „alveg vígaleg“.  Frá Vatnsleysu mæta Bjössi og Arndís með eitthvert sérvalið augnakonfekt úr sinni ræktun.  Húsvíkingar gleðja okkur með nærveru sinni sem og Líney og Sæmundur á Tunguhálsi.  Ungir ofurhugar hjá Létti munu spreyta sig í hindrunarstökki, litlir strumpar verða á ferli, skeiðgammar þeysa í gegnum höllina og eitt alvöru áhættuatriði verður í boði þar sem fram koma um 70 hross í einu atriði!“ segir í tilkynningu frá aðstandendum sýningarinnar.    
 
Forsala aðgöngumiðar er í Fákasporti og Líflandi á Akureyri og kostar miðinn 2500 kr. en frítt er fyrir 12 ára og yngri. 
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link