Strokuhrossin ekki komin í leitirnar

  • 27. júlí 2021
  • Fréttir

Ferðalangar eru beðnir um að skima eftir hrossum á ferðum sínum um landið

Í síðustu viku fjallaði Eiðfaxa um fimm hross sem töpuðust frá Gatfelli þar sem eigandi þeirra, Guðrún Jónsdóttir á Sandbakka í Flóa, var í hestaferð ásamt ferðafélögum sínum.

Lítið sem ekkert hefur frést af hrossunum en í dag er hálfur mánuður síðan þau töpuðust. „Þau hafa hvergi sést ennþá en ég frétti af nýlegum hófsporum við Hlöðufell. Ferðahópur sem var í 12 daga ferð í kringum Hofsjökul kom að hófsporum sem gætu hafa verið eftir fimm hross.“ Segir Guðrún en þetta er eina ábendingin sem henni hefur borist. „Það fer eiginlega allur minn tími í þessa leit nú um stundir við höfum leitað úr lofti og á jeppa. Við eigum sjálf litla flugvél sem nýtist vel núna til leitarinnar.“ 

Hlöðufell er norðaustur af Gatfelli þaðan sem hrossin töpuðust en hrossin stukku einmitt í þá átt. Um það bil 20 km eru frá Gatfelli og að Hlöðufelli í beinni loftlínu og því ættu hrossin ekki að vera lengi að ferðast þá vegalengd. Ætla má því að þau geti verið komin ansi fjarri þeim stað í dag.

LOFTMYNDIR

„Ég hef hringt í bændur í uppsveitum Árnessýslu og spurst fyrir um hvort þeir hafi orðið varir við ókunnug hross í sínum hrossastóðum eða heimahögum en allt kemur fyrir ekki.“ Segir Guðrún sem mun halda áfram að leita hrossanna og biðlar til fólks að heyra í sér í síma 863-9526 ef einhver fréttir af eða sér vísbendingar sem gætu leitt til fundar á hrossunum fimm.

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link