Styttist í fimmganginn í Meistaradeildinni
Keppt verður í fimmgangi F1 í HorseDay höllinni Ingólfshvoli fimmtudaginn 29. febrúar. Keppni hefst kl. 19:00 og ætlar Toyota Selfossi að bjóða áhorfendum frítt í stúkuna og hvetur stjórn Meistaradeildarinnar alla til að mæta.
„Að vanda verða frábærar veitingar í boði fyrir áhorfendur í HorseDay höllinni á vegum Veisluþjónustu Suðurlands og er gestum bent á glæsilegt hlaðborð – og ef þú pantar fyrir fram færð þú í kaupbæti frátekið sæti á besta stað í stúkunni – húsið opnar 17:00! Nánari upplýsingar má finna á [email protected],“ segir í tilkynningu frá stjórn deildarinnar.
Þeir sem ekki komast á deildina geta fylgst með í beinni útsendingu á Alendis.
Í fyrra voru það Sara Sigurbjörnsdóttir og Flóki frá Oddhóli sem stóðu uppi sem sigurvegarar, núverandi heimsmeistarar. Það er ljóst að þau eru ekki að mæta til leiks heldur verða nýir sigurvegarar krýndir. Bestu knapar landsins munu berjast um titilinn um það hver sigri Meistaradeild Líflands 2024 og það er ljóst að margir ætla sér stóra hluti! Hver ætli að vinni fimmganginn í Meistaradeild Líflands 2024?
Fylgist með Meistaradeildinni á Instagram undir nafninu @meistaradeildin og endilega notið hashtagið #meistaradeildin.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH