Styttist í töltveisluna
Ætli Reynir Örn mæti á Tón frá Melkoti í töltið ?
Fimmtudaginn 6 mars kl. 19:00 verður keppt í tölti í Meistaradeildinni í hestaíþróttum.
Forsala aðgöngumiða hefst á morgun í verslunum Top Reiter, Líflandi og hjá Baldvin og Þorvaldi á Selfossi. Aðgangseyrir á mótið er 1.500 krónur. Gera má ráð fyrir húsfylli og því er um að gera að tryggja sér miða í tíma.
Í fyrra fengum við sannkallaða töltveislu og úrslitin voru æsispennandi. Þá báru þau Viðar Ingólfsson og Vornótt frá Hólabrekku sigur úr býtum með einkunina 8,89, í öðru sæti urðu Íslandsmeistararnir Árni Björn Pálsson og Stormur frá Herríðarhóli með einkuninna 8,44 og í þriðja til fjórða sæti urðu hnífjafnir þeir Sigurður Vignir Matthíasson á Andra frá Vatnsleysi og Guðmundur Björgvinsson á Hrímni frá Ósi.
Það er ljóst að það stefnir í hörkukeppni í næstu viku og hestakosturinn verður svakalegur.
Heyrst hefur að Viðar mæti með Vornótt í titilvörnina, búast má við að Árni Páll mæti með Stormi, Guðmundur með Hrímni og svo hefur einnig heyrst að Krít frá Miðhjáleigu mæti ásamt Leó Geir. Krít hefur ekki áður keppt í Meistaradeildinni.
Þetta eru einungis fyrstu fréttir af hestakostinum sem mun gleðja okkur í næstu viku. Við munum væntanlega hafa fleiri fréttir af hestum eftir æfingar helgarinnar en ráslistinn mun liggja fyrir á miðvikudagsmorgun.
Staðan í bæði liða- og einstaklingskeppninni er mjög spennandi en mörg stig eru eftir í pottinum enn og staðan getur verið fljót að breytast.
Konunar ráða ríkjum í tveimur efstu sætum einstaklingskeppninar en þar leiðir Olil Amble með 25 stig. Sylvía fylgir henni fast á eftir með 20 stig, Ísólfur Líndal er í þriðja sæti með 17 stig og kemur sterkur inn í Meistaradeildina.
Í liðakeppninni er spennan mikil og þar skilur einunigs hálft stig af fyrsta og annað sætið. Toppinn vermir lið Auðsholtshjáleigu með 140,5 stig og fast á eftir fylgir lið Topreiter/Sólning með 140 stig. Í þriðja sæti er svo lið Gangmyllunar með 120 stig.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH