Suðurlandsdeildin 2022 – ætlar þú að sækja um ?
11 lið hafa staðfest þátttöku í Suðurlandsdeild 2022 sem þýðir að þrjú pláss eru laus fyrir ný lið. Nú er því kjörið tækifæri til þess að setja saman lið og vera með á komandi keppnistímabili í Suðurlandsdeildinni í hestaíþróttum í Rangárhöllinni á Hellu!
Umsóknarfrestur fyrir ný lið er til 5. nóvember n.k. !
Umsókninni þurfa að fylgja staðfest nöfn 2-3 atvinnumanna og 3 áhugamanna. Dregið verður úr umsóknum sé umfram eftirspurn.
Þau lið sem féllu úr deildinni 2021 geta sótt um aftur og fara í pottinn ásamt nýjum liðum sem sækja um.
Liðin verða áfram skipuð 2-3 atvinnumönnum og 3 áhugamönnum. Á hverju kvöldi keppa 2 áhugamenn og 2 atvinnumenn, nema á lokakvöldinu – þá geta allir keppt. Áhugamaður má keppa sem atvinnumaður en atvinnumaður má ekki keppa sem áhugamaður. Áfram verður Suðurlandsdeildin einungis liðakeppni en þrjú stigahæstu liðin verða verðlaunuð.
Atvinnumaður: Allir ásamt ungmennum.
Áhugamaður: Er að lágmarki 22 ára á árinu og má ekki hafa keppt í meistaraflokk síðustu 2 ár.
Stjórn Suðurlandsdeildarinnar hefur loka ákvörðunarvald um hvort knapar uppfylli inngangsskilyrði.
Allar spurningar sem og umsóknir vegna Suðurlandsdeildar skulu sendar á [email protected].
Hvetjum hestamenn að safna saman í lið og sækja um í Suðurlandsdeildina 2022.
Sjáumst í Rangárhöllinni í vetur!
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH