Suðurlandsdeildin Suðurlandsdeildin – Lið Húsasmiðjunnar

  • 5. maí 2021
  • Fréttir

Nú fer Suðurlandsdeildin að líða undir lok en lokakeppni deildarinnar fer fram þann 11. maí n.k. þar sem keppt verður í tölti og skeiði. Skeið verður haldið utandyra og hefst keppni í skeiði kl. 18:00.

Níunda liðið sem við kynnum til leiks af þeim fjórtán sem taka þátt í deildinni í vetur er lið Húsasmiðjunnar.

Um Húsasmiðjuna:

Allt frá grunni að góðu heimili síðan 1956 – Leiðandi í sölu á byggingavörum um land allt.

Húsasmiðjan er markaðssinnað verslunar- og þjónustufyrirtæki á sviði miðlunar, sölu og dreifingar vöru og þjónustu.

Húsasmiðjan býður upp á breitt vöruúrval á samkeppnishæfu verði um allt land og rekur 16 verslanir undir merkjum Húsasmiðjunnar.

Þá er komið að kynningu á liðsmönnum en fyrstan kynnum við til leiks atvinnumanninn Ólaf Þórisson í Miðkoti.

Nafn: Ólafur Þórisson
Aldur: 43 ára
Fjölskylduhagir: Giftur Söruh og eigum saman 3 börn
Atvinna: Bóndi og tamningar
Stefni á þátttöku í eftirfarandi greinum: Öllum sem ég næ inn fyrir liðið
Markmið með þátttöku í deildinni: Bæta sjálfan mig og vinna hina.
Hvaða hest lífs eða liðinn myndir þú vilja fá í hendurnar til að styrkja hestakostinn fyrir keppnistímabilið: Ormur frá Dallandi

Nafn: Sigursteinn Sumarliðason
Aldur: 42 ára
Fjölskylduhagir: Einhleypur
Atvinna: Tamningamaður
Stefni á þátttöku í eftirfarandi greinum: Stefndi á parafimi en gekk ekki
Markmið með þátttöku í deildinni: Gera mitt besta
Hvaða hest lífs eða liðinn myndir þú vilja fá í hendurnar til að styrkja hestakostinn fyrir keppnistímabilið: Pass

Davíð Jónsson Aldur: 41 ára
Fjölskylduhagir: Í sambúð með Katrínu Sig og eigum 2 börn
Atvinna: Smiður
Stefni á þátttöku í eftirfarandi greinum: Stefni á parafimi
Markmiðið með þátttöku í deildinni: Að eiga ógleymalega sýningu í parafimi
Hvaða hest lífs eða liðinn myndir þú vilja fá í hendurnar til að styrkja hestakostinn fyrir keppnistímabilið: Alveg tómur þarna

Þá eru það áhugamenn liðsins.

Nafn: Jakobína Agnes Valsdóttir
Aldur: 42 ára
Fjölskylduhagir: Gift Guðmari Aubertsyni og eigum saman 5 stráka
Atvinna: Vinn á dýraspítala
Stefni á þátttöku í eftirfarandi greinum: Stefni á að vera með þar sem gagnast liðinu best.
Markmið með þátttöku í deildinni: Markmið mitt er að gera eins vel og ég get.
Hvaða hest lífs eða liðinn myndir þú vilja fá í hendurnar til að styrkja hestakostinn fyrir keppnistímabilið: ?????

Nafn: Katrín Ólína Sigurðardóttir
Aldur: 47 ára
Fjölskylduhagir: Í sambúð með Davíð Jónssyni og eigum2 börn.
Atvinna: Ferðaþjónustubóndi
Stefni á þátttöku í eftirfarandi greinum: Stefni á þátttöku í parafimi,fjórgangi, tölti og skeiði.
Markmiðið með þátttöku í deildinni: Að bæta mig sem knapa
Hvaða hest lífs eða liðinn myndir þú vilja fá í hendurnar til að styrkja hestakostinn fyrir keppnistímabilið: Hrímnir frá Hrafnagili

Nafn: Sarah M. Nielsen
Aldur: 39 ára
Fjölskylduhagir: Gift Ólafi og saman eigum við 3 börn
Atvinna: Leikskólaleiðbeinandi og heimavinnandi húsmóðir.
Stefni á þátttöku í eftirfarandi greinum: Öllum þeim sem gagnast liðinu best.
Markmið með þátttöku í deildinni: Bæta reiðmennsku og njóta samverunar kringum hestana og liðið.
Hvaða hest lífs eða liðinn myndir þú vilja fá í hendurnar til að styrkja hestakostinn fyrir keppnistímabilið: Stæll frá Miðkoti á sínum yngri árum.

Link á viðburðinn má nálgast hér: https://www.facebook.com/events/5491920074212911 Að sjálfsögðu verður sýnt beint frá mótinu á ALENDIS TV.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link