Suðurlandsdeildin – ráslisti í parafimi
Parafimi er keppnisgrein sem reynir á ganghæfileika, fegurð, kraft og glæsileika hestsins.
Líkt og nafn greinarinnar gefur til kynna þá mynda tveir knapar par á reiðvellinum og reynir hún því mikið á samvinnu þeirra. Annar knapinn er atvinnuknapi og hinn áhugamaður en þó geta báðir knapar verið áhugamenn.
Ekki láta þessa spennandi grein framhjá þér fara og athugið að hvergi er keppt í henni nema í Suðurlandsdeildinni í Rangárhöllinni á Hellu!
24 pör eru skráð til leiks annað kvöld og eftir að hafa fylgst með æfingum má búast við gríðarlega flottum sýningum!
Húsið opnar kl. 17:45 og keppni hefst kl. 18:00.
Aðgangseyrir er 1.000 kr.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH