Summer Saundlau efst unglinga í slaktaumatölti

  • 8. ágúst 2026
  • Fréttir

Summer Sandlau Jacobsen Ljósmynd: Cassandra Laikmets/Clfoto

Elísabet og Mió þriðju að lokinni forkeppni

Næst síðasti dagur Norðurlandamóts hófst á síðustu forkeppninni á mótinu þegar unglingar kepptu í slaktaumatölti. Hægt er að horfa á Norðurlandamótið í beinni á EiðfaxaTV.

Einn íslenskur keppandi var á meðal þátttakenda en það var Elísabet Benediktsdóttir á Mió från Änghaga og hlutu þau 6,17 í einkunn. Efst að lokinni forkeppni er Summer Sandlau Jacobsen á Djass frá Engholm með 7,00 í einkunn en þau keppa fyrir hönd Danmerkur í öðru sæti er Julie Forberg á Taktík frá Teland með 6,20 í einkunn.

Unglingaflokkur
Forkeppni
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Summer Sandlau Jacobsen Djass fra Engholm 7,00
2 Julie Forberg Taktík fra Teland 6,20
3 Elísabet Benediktsdóttir Mió från Änghaga 6,17
4 Freja Hesselbjerg Tóra fra Almindingen 6,03

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link