Svæðisskipt liðskipan í KEA mótaröðinni
Áfram verður liðakeppni í KEA mótaröðinni, en þó með aðeins breyttu sniði í ár því liðin verða svæðisskipt eftir því hvar knapinn stundar hestamennsku. Þetta kemur fram í tilkynningu frá mótanefnd Léttis.
Keppt verður í þremur flokkum:
- Mikið vanir
- Meðal vanir
- Lítið vanir
Í hverjum flokki telja tveir efstu í hverju liði til stiga. Níu efstu knaparnir í hverjum flokki fá stig í einstaklingskeppni.
Liðin verða eftirfarandi:
- 1. Akureyri – Lögmannshlíð: Höskuldur Jónsson s.8925520 netfang: [email protected]
- 2. Akureyri og nágrenni (Breiðholt og Eyjafjörður út og suður): Camilla Hoj – [email protected]
- 3. Hörgársveit: Þór Jónsteinsson s.8991057
- 4. Fyrir austan Vaðlaheiði: Einar Víðir s 8693248
- 5. Aðrir knapar frá fleiri aðildarfélögum: Baldvin Ari s.8941345
Áhugasömum knöpum er bent á að skrá sig hjá viðkomandi tengiliðum fyrir 5.febrúar.
Keppnisdagar KEA mótaraðar í ár eru eftirfarandi:
- Fjórgangur 19.feb
- Fimmgangur 6.mars
- Tölt 27.mars
- Smali, skeið og lokahóf 24. apríl
Ekki er skylda að keppa í öllum greinum.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH