Svanhildur hélt forystunni
Svanhildur hélt forystunni
Svanhildur Guðbrandsdóttir sigraði í keppni í ungmennaflokki á hryssunni Aðgát frá Víðivöllum fremri en einkunn þeirra var 8,51 í úrslitum. Svanhildur var efst að lokinni forkeppni og hélt fyrsta sætinu í a-úrslitum.
Elín Árnadóttir og Blær frá Prestsbakka voru aðrar með 8,43 og Brynjar Nói sem sigraði töltið í gær varð í þriðja sæti með 8,41 í einkunn.
Sæti Keppandi Heildareinkunn
1 Svanhildur Guðbrandsdóttir / Aðgát frá Víðivöllum fremri 8,51
2 Elín Árnadóttir / Blær frá Prestsbakka 8,43
3 Brynjar Nói Sighvatsson / Konsúll frá Ármóti 8,41
4 Eyjalín Harpa Eyjólfsdóttir / Trú frá Ási 8,34
5 Elísa Benedikta Andrésdóttir / Lukka frá Bjarnanesi 8,26
6 Mathilde Nijzingh / Hornsteinn frá Horni I 8,10
7 Hildur Árdís Eyjólfsdóttir / Ylfa frá Ási 8,09
8 Mathilde Larsen / Stormur frá Bjarnanesi 3,24
Styttu haustið með EiðfaxaTV