Sveinn nýr formaður Félags hrossabænda
Sveinn Steinarsson er nýr formaður Félags hrossabænda.
Sveinn Steinarsson er nýr formaður Félags Hrossabænda. Hann var einn í framboði og var kjörinn í lok aðalfundar félagsins í dag.
Sveinn tekur við starfi Kristins Guðnason sem hefur sinnt því í 14 ár. Sveinn hefur verið formaður Hrossaræktarsamtaka Suðurlands í árabil og er hrossabóndi í Litlalandi í Ölfusi.
Formaður Félags hrossabænda er kjörinn til þriggja ára í senn.
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing
Áhugamannadeild Norðurlands áfram á EiðfaxaTV