Svigrúm til að bæta við hrossum
Skráningarfrestur á kynbótasýningar í Víðidal, Gaddstaðaflötum og Miðfossum rann út síðastliðinn föstudag.
Miðað við þær skráningar sem komnar voru inn þegar skráningafresti lauk er nú búið að manna sýningar og festa sýningardaga. Þar sem svigrúm er til að bæta hrossum við kynbótasýningu í Víðidal 8.-12. júní hefur verið opnað á skráningu til að fylla í þau pláss á þessari tilteknu sýningu, samkvæmt frétt frá RML.
Skráning verður opin fram að miðnætti föstudags 29. júní eða þar til sýning fyllist.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH