Svíþjóð unnu liðabikarinn
Svíar fagna frábærum árangri á Norðurlandamótinu Mynd: CL Foto
Á Norðurlanda- og Heimsmeistaramótum eru veitt verðlaun fyrir stigahæsta landið eða liðið. Að þessu sinni fór bikarinn til sænska landsliðsins en sænsku knaparnir hafa staðið sig gríðarlega vel á mótinu og er þetta annað mótið í röð sem bikarinn fer til Svíþjóðar.
Norðurlandameistarar Svía
- Guðmundur Einarsson – Draumur fran Tangmark – 250 m. skeið
- Guðmundur Einarsson – Draumur fran Tangmark – Gæðingaskeið
- Vera Elgholm – Dreki fran Lind – 100 m. skeið unglingaflokkur
- Vera Elgholm – Dreki fran Lind – 250 m. skeið unglingaflokkur
- Vera Elgholm – Dreki fran Lind – gæðingaskeið unglingaflokkur
- Liam Billow – Agða frá Tangby – Tölt unglingaflokkur
- Tekla Petersson – Órion frá Lækjamóti – Slaktaumatölt ungmennaflokkur
- Klara Nydahl – Dagur frá Ketilsstöðum – Fimmgangur ungmennaflokkur
- Molly Öberg – Lótus from Ödegarden – Fimmgangur unglingaflokkur
- Olivia Agerhill – Julia fran Agersta – 100 m. skeið ungmennaflokkur
- Alfons Bergqvist – Bjartur frá Strandarhjáleigu – A flokkur ungmenna
- Sara Garðarsdóttir Hesselman – Herkúles fran Knubbo – gæðingaskeið ungmennaflokkur
Hægt er að horfa á Norðurlandamótið á EiðfaxaTV.
Glæsilegur hópur Íslendinga á leið á Norðurlandamót í Svíþjóð