Norðurlandamót Svíþjóð vann liðabikarinn

  • 11. ágúst 2024
  • Fréttir

Hluti af liði Svíþjóðar og aðstoðarfólki. Ljósmynd: Anja Mogensen

Norðurlandamótinu í Danmörku er formlega lokið. 

Hér fyrir neðan eru sigurvegarar í samanlögðum greinum en Ísland fékk þar tvö silfur, Ragnar Snær Viðarsson fékk silfur í samanlögðum fjórgangsgreinum og Hulda María Sveinbjörnsdóttir í samanlögðum fimmgangsgreinum í ungmennaflokki.

Svíþjóð var stigahæsta liðið og Jessica Hou Geerten fékk fjaðurverðlaunin fyrir góða reiðmennsku.

Sigurvegari í samanlögðum fjórgangsgreinum í unglingaflokki: Maria Beske Nielsen og Víkingur frá Feti – Danmörk
Sigurvegari í samanlögðum fjórgangsgreinum í fullorðinsflokki: Christina Lund og Lukku-Blesi frá Selfossi – Noregur
Sigurvegari í samanlögðum fjórgangsgreinum í ungmennaflokki: Amanda Frandsen og Tinna frá Litlalandi – Danmörk

Sigurvegari í samanlögðum fimmgangsgreinum í unglingaflokki: Sara Gardarsdottir Hesselman and Herkúles från Knubbo representing – Svíþjóð
Sigurvegari í samanlögðum fimmgangsgreinum í fullorðinsflokki: Nils-Christian Larsen and Gustur vom Kronshof representing – Noregur
Sigurvegari í samanlögðum fimmgangsgreinum í ungmennaflokki: Tekla Petersson and Vatnadís från Noastallet – Svíþjóð

Reiðmennskuverðlaunin: Jessica Hou Geerten

Stigahæsta liðið: Svíþjóð

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link