Sýnikennsla með Mette Moe Mannseth
Sýnikennsla með Mette Moe Mannseth verður í reiðhöllinni Faxaborg í Borgarnesi laugardagskvöldið 15. Janúar n.k. kl. 1830…
Aðgangur aðeins 1500kr.
Mette er óþarft að kynna sérstaklega hún hefur náð frábærum árangri í bæði sýningum og keppni, með fallega og vel þjálfaða hesta.
Þetta er önnur sýnikennslan sem hún heldur að þessu sinni í Faxaborg. Það verður fræðandi og gaman að sjá hvernig hún heldur áfram að sýna okkur þær aðferðir sem hún notar við þjálfun og uppbyggingu sinna hesta.
Það er tilvalið nú í byrjun vetrar að rifja upp, læra nýjar aðferðir og fá hugmyndir um þjálfun á hestunum okkar. Hvetjum allt áhugafólk um þjálfun hesta og reiðmennsku að láta þetta tækifæri ekki fram hjá sér fara.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH