Sýnikennsla með Sigvalda Lárusi Guðmundssyni í Herði
Sigvaldi Lárus Guðmundsson, hestamaður og reiðkennari ætlar að vera með sýnikennslu í Reiðhöllinni í Herði fimmtudagskvöld 25.11.2021 kl 19:30. Sigvaldi ætlar að fjalla um sýnar hugmyndir sem snúa að hestamennskunni, tamningu, þjálfun og reiðmennsku. Við fáum að kynnast hans nálgun við tamningu og þjálfun ungra hesta og ekki síður knapa með virðingu og traust að leiðarljósi. Hann verður með unga og efnilega einstaklinga með í för.
Sigvaldi er útskrifaður Reiðkennari frá Háskólanum á Hólum, starfað sem reiðkennari á Hólum og við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri, kenndi Reiðmanninn og er nú yfirreiðkennari hæfileikamótunar LH fyrir krakka á aldrinum 14-17 ára ásamt því að hafa tamið og þjálfað víða til margra ára.
Aðgangseyri er 1500 kr. en frítt er fyrir 16 ára og yngri.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH