Sýning Frakks frá Laugavöllum B flokki endaði með ósköpum
Vel heppnuð sýning Berlindar Ragnarsdóttur á hestinum Frakki frá Laugavöllum í milliriðli í B flokki á LM2012 endaði með ósköpum þegar Frakkur missteig sig datt með þeim afleiðingum að Berglind féll af baki. Berglind fékk allmikið högg þegar hún lenti á hörðum vellinum og var greinilegt að hana verkjaði allnokkuð. Eftir því sem fram kemur á landsmot.is eru meiðsli hennar ekki alvarleg. Því miður fékk Frakkur ekki einkunn þar sem sýning er ólögleg ef knapinn fellur af baki.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH