Systurnar frá Sunnuhvoli sigruðu – Meistaradeild Líflands og æskunnar

  • 8. mars 2020
  • Fréttir

Ólafur Ingi Ólafsson tók myndirnar sem fylgja fréttinni

 

Þriðja mót Meistaradeildar Líflands og æskunnar fór fram í TM höllinni í Víðidal í dag. Það var Equsana slaktaumatöltið og flugskeið í gegnum höllina.

Mótið gekk afar vel fyrir sig enda aðstæður góðar bæði innanhúss og utan, og mikill kostur að geta hitað vel upp í rólegheitum.

Slaktaumatöltið er skemmtileg grein og tæknilega erfið. Unga fólkinu í deildinni gekk afar vel upp í sýningum sínum og sýndu fágaða og prúðmannlega framkomu. Það var Védís Huld Sigurðardóttir úr Hrímnisliðinu á Hrafnfaxa frá Skeggsstöðum sem sigraði A-úrslitin með 7,96 í einkunn. Önnur varð Signý Sól Snorradóttir, Top Reiter, á Rafni frá Melabergi með 7,25 og þriðja varð Hulda María Sveinbjörnsdóttir á Polka frá Tvennu, Top Reiter, með 7,12.

B-úrslitin sigraði Hekla Rán Hannesdóttir í liði Ganghesta/Hamarseyjar/Bakkakots, á Þoku frá Hamarsey með 7,29 og annar varð Matthías Sigurðsson á Sólfaxa frá Sámsstöðum í sama liði með 7,12.

Flugskeiðið í gegnum höllina var að venju spennandi og alltaf gaman að horfa á hraða og tæknilega grein. Sigurvegari þess var Glódís Rún Sigurðardóttir í Hrímnisliðinu, á Blikku frá Þóroddsstöðum á tímanum 5,27. Annar varð Jón Ársæll Bergmann, Ganghestum/Hamarsey/Bakkakoti, á Væntingu frá Sturlureykjum 2 á 5,40 sek, og þriðji varð Arnar Máni Sigurjónsson, liði Kletts, á Púka frá Lækjarbotnum á 5,51 sek.

Stigahæsta liðið í slaktaumatöltinu var lið Top Reiter og stigahæsta liðið í flugskeiðinu varð lið Kletts.

 

Hér fyrir neðan eru heildarniðurstöður mótsins:

 

Mót: IS2020FAK075 Meistaradeild Líflands og æskunnar – T2 og skeið
Tölt T2
Opinn flokkur
Forkeppni
Sæti Knapi Hross Aðildarfélag knapa Einkunn
1 Védís Huld Sigurðardóttir Hrafnfaxi frá Skeggsstöðum Sleipnir 7,33
2 Hulda María Sveinbjörnsdóttir Polka frá Tvennu Sprettur 7,00
3 Signý Sól Snorradóttir Rafn frá Melabergi Máni 6,87
4 Guðný Dís Jónsdóttir Roði frá Margrétarhofi Sprettur 6,83
5 Þórey Þula Helgadóttir Gjálp frá Hvammi I Smári 6,77
6 Selma Leifsdóttir Hrafn frá Eylandi Fákur 6,67
7 Matthías Sigurðsson Sólfaxi frá Sámsstöðum Fákur 6,60
8 Egill Már Þórsson Sómi frá Kálfsstöðum Léttir 6,53
9 Hekla Rán Hannesdóttir Þoka frá Hamarsey Sprettur 6,47
10-11 Elín Þórdís Pálsdóttir Ópera frá Austurkoti Sleipnir 6,37
10-11 Sara Dís Snorradóttir Eldey frá Hafnarfirði Sörli 6,37
12 Benedikt Ólafsson Biskup frá Ólafshaga Hörður 6,33
13 Kristófer Darri Sigurðsson Vorboði frá Kópavogi Sprettur 6,20
14 Glódís Líf Gunnarsdóttir Magni frá Spágilsstöðum Máni 6,10
15 Hrund Ásbjörnsdóttir Hárekur frá Sandhólaferju Fákur 6,03
16-17 Kristín Hrönn Pálsdóttir Gaumur frá Skarði Fákur 6,00
16-17 Erika J. Sundgaard Sóldís frá Miðkoti Geysir 6,00
18 Lilja Dögg Ágústsdóttir Adam frá Skammbeinsstöðum 1 Geysir 5,83
19 Eygló Hildur Ásgeirsdóttir Nóta frá Grímsstöðum Fákur 5,70
20 Diljá Sjöfn Aronsdóttir Kristín frá Firði Sprettur 5,33
21 Bergey Gunnarsdóttir Strengur frá Brú Máni 5,17
22 Anna María Bjarnadóttir Salka frá Hofsstöðum Geysir 4,87
23 Jónas Aron Jónasson Bella frá Hafnarfirði Sörli 4,30
B úrslit
Sæti Knapi Hross Aðildarfélag knapa Einkunn
6 Hekla Rán Hannesdóttir Þoka frá Hamarsey Sprettur 7,29
7 Matthías Sigurðsson Sólfaxi frá Sámsstöðum Fákur 7,12
8 Sara Dís Snorradóttir Eldey frá Hafnarfirði Sörli 6,96
9 Egill Már Þórsson Sómi frá Kálfsstöðum Léttir 6,88
10 Elín Þórdís Pálsdóttir Ópera frá Austurkoti Sleipnir 6,75
11 Selma Leifsdóttir Hrafn frá Eylandi Fákur 6,62
A úrslit
Sæti Knapi Hross Aðildarfélag knapa Einkunn
1 Védís Huld Sigurðardóttir Hrafnfaxi frá Skeggsstöðum Sleipnir 7,96
2 Signý Sól Snorradóttir Rafn frá Melabergi Máni 7,25
3 Hulda María Sveinbjörnsdóttir Polka frá Tvennu Sprettur 7,12
4 Guðný Dís Jónsdóttir Roði frá Margrétarhofi Sprettur 6,96
5 Þórey Þula Helgadóttir Gjálp frá Hvammi I Smári 4,79
6 Hekla Rán Hannesdóttir Þoka frá Hamarsey Sprettur 0,00

Glódís Rún stóð efst í skeiði á Blikku frá Þóroddsstöðum

lið Top Reiter var stigahæst í slaktaumatölti

 

Lið Kletts var stigahæst í flugskeiðinu

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link