Taka glæsilega aðstöðu í notkun
Eins og áður hefur komið fram hér á vefnum þá fluttu Agnar Þór og Birna norður yfir heiðar í haust en þau hafa nú komið sér fyrir á Garðshorni í Þelamörk.
Nú hafa þau tekið í notkun nýtt hesthús en auk aðstöðu fyrir hross er á jörðinni stórt fjárhús.
Um helgina var hesthúsið vígt en framkvæmdir höfðu staðið yfir frá því í haust. Að því tilefni buðu þau heim og gátu þá gestir virt fyrir sér aðstöðuna.
Eiðfaxi óskar þeim til lukku með jörðina og nýja hesthúsið en ítarlegt viðtal er við þau í Jólablaði Eiðfaxa þar sem hestamennsku þeirra og hrossarækt er gerð góð skil.
Fleiri myndir af vígslunni má sjá á Facebook síðu Sporthesta
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH