Tannheilbrigði og beislabúnaður

  • 31. janúar 2020
  • Fréttir

Getur hesturinn minn fengið tannpínu? Skyldi óstöðugur höfuðburður hafa
eitthvað með tannheilbrigði að gera? Hvernig veit ég hvort hesturinn
minn sé með réttu mélin? Er gott að hestur freyði?

Sonja Líndal Þórisdóttir dýralæknir og reiðkennari mun fara yfir þetta
og margt fleira í TM Reiðhöllinni mánudaginn 3. febrúar 2020 kl. 20.

Sonja hefur frá því að hún útskrifaðist sem dýralæknir árið 2014 lagt
áherslu á að sinna tannheilsu íslenska hestsins, enda alveg kjörin leið
til að sameina dýralækna og reiðmennsku þekkinguna. Hún stundar nú nám í
sérhæfðum hestatannlækningum.

Allir hestar eru með munn og því á erindið við alla hestamenn hvort sem
þeir eru byrjendur eða fagfólk.

Léttar veitingar frá Jóa Fel í boði. Aðgangseyrir 1500 kr og posi á
staðnum.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link