Íslandsmót Teitur Íslandsmeistari í fimmgangi meistara

  • 2. júlí 2023
  • Fréttir
Niðurstöður frá Íslandsmóti fullorðna og ungmenna

Já það er óhætt að segja að fimmgangsúrslitin í meistaraflokki hafi verið jöfn og spennandi !

Jafnir í efsta sæti voru Þórarinn Eymundsson á Þráni frá Flagbjarnarholti og Teitur Árnason á Atlasi frá Hjallanesi. Eftir sætaröðun dómara endaði Teitur á Atlasi í fyrsta sæti og Íslandsmeistaratitillinn þeirra.

„Hafði trú á að ég gæti klárað þetta. Þetta eru allt saman frábærir hestar, reynlsumiklir hestar í bland við nýja og ferska sem eru að koma inn. Atlas hefur verið með stíganda í ár og í fyrra. Ég ætlaði mér að koma og vinna þetta,“ segir Teitur Árnason. Teitur er ríkjandi heimsmeistari og á því sæti í liðinu. Aðspurður segist hann ekki vera búinn að ákveða hvaða hest hann velur sér til að mæta með í Holland.

Jafnir í þriðja til fjórða sæti voru þeir Þorgeir Ólafsson á Goðasteini frá Haukagili Hvítársíðu og sigurvegari b úrslitanna Hans Þór Hilmarsson á Öl frá Reykjavöllum.

Niðurstöður – A úrslit – Fimmgangur – Meistaraflokkur

Nr. 1-2
Knapi: Teitur Árnason – 7,74
Hross: Atlas frá Hjallanesi 1
Gangtegund Dómari 1 Dómari 2 Dómari 3 Dómari 4 Dómari 5 Meðaltal
Tölt 9,00 8,00 8,50 8,50 8,50 8,50
Brokk 7,50 7,00 7,50 8,00 7,00 7,33
Fet 6,50 6,50 6,00 6,50 6,50 6,50
Stökk 6,50 7,00 7,50 7,00 7,00 7,00
Skeið 8,00 7,50 8,00 8,50 8,50 8,17

Nr. 1-2
Knapi: Þórarinn Eymundsson – 7,74
Hross: Þráinn frá Flagbjarnarholti
Gangtegund Dómari 1 Dómari 2 Dómari 3 Dómari 4 Dómari 5 Meðaltal
Tölt 8,50 8,50 8,00 8,00 8,50 8,33
Brokk 6,50 7,00 6,50 7,50 6,50 6,67
Fet 7,50 7,00 6,50 7,50 7,00 7,17
Stökk 7,00 7,00 7,00 7,00 6,50 7,00
Skeið 7,50 8,50 8,00 8,50 8,50 8,33

Nr. 3-4
Knapi: Þorgeir Ólafsson – 7,71
Hross: Goðasteinn frá Haukagili Hvítársíðu
Gangtegund Dómari 1 Dómari 2 Dómari 3 Dómari 4 Dómari 5 Meðaltal
Tölt 8,00 8,00 7,50 7,50 8,00 7,83
Brokk 8,50 7,50 8,00 7,50 7,50 7,67
Fet 7,00 7,00 7,00 8,00 7,50 7,17
Stökk 7,50 7,50 7,50 7,50 7,00 7,50
Skeið 7,50 8,00 8,00 8,00 8,00 8,00

Nr. 3-4
Knapi: Hans Þór Hilmarsson – 7,71
Hross: Ölur frá Reykjavöllum
Gangtegund Dómari 1 Dómari 2 Dómari 3 Dómari 4 Dómari 5 Meðaltal
Tölt 8,50 8,00 8,50 8,00 8,50 8,33
Brokk 7,00 7,00 6,50 7,50 7,50 7,17
Fet 7,00 7,00 7,00 7,00 7,00 7,00
Stökk 7,50 7,50 8,00 7,50 7,50 7,50
Skeið 7,50 7,50 8,00 8,00 8,00 7,83

Nr. 5
Knapi: Jakob Svavar Sigurðsson – 7,62
Hross: Nökkvi frá Hrísakoti
Gangtegund Dómari 1 Dómari 2 Dómari 3 Dómari 4 Dómari 5 Meðaltal
Tölt 8,00 8,00 8,00 8,00 8,00 8,00
Brokk 7,50 7,00 8,00 7,00 7,00 7,17
Fet 6,50 6,00 6,50 6,50 6,00 6,33
Stökk 6,50 7,00 7,00 7,00 6,50 6,83
Skeið 8,50 8,00 8,50 8,50 8,50 8,50

Nr. 6
Knapi: Sara Sigurbjörnsdóttir – 6,83
Hross: Flóki frá Oddhóli
Gangtegund Dómari 1 Dómari 2 Dómari 3 Dómari 4 Dómari 5 Meðaltal
Tölt 7,50 8,00 7,50 7,50 8,00 7,67
Brokk 7,50 7,50 8,00 7,50 7,50 7,50
Fet 7,00 7,00 7,00 7,00 7,00 7,00
Stökk 7,50 8,00 8,50 7,50 7,00 7,67
Skeið 4,50 7,50 4,50 4,00 6,50 5,17

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link