Norðurlandamót Tekla Norðurlandameistari í slaktaumatölti ungmenna

  • 9. ágúst 2026
  • Fréttir
Fanndís og Ötull urðu í þriðja sæti

Áfram rúllar úrslitadagur  Norðurlandamóts í hestaíþróttum sem er að sjálfsögðu er í beinni á EiðfaxaTV en allar upplýsingar, ráslista og dagskrá er hægt að sjá í HorseDay og einnig má sjá dagskrá dagsins hér.

Þau voru glæsileg úrslitin í slaktaumatölti í ungmennaflokki. Tekla Petersson og Óríon frá Lækjamóti báru sigur úr býtum en þau hlutu 7,79 í einkunn. Saga Berggren og Kolfinnur från Margaretehof varð í öðru sæti með 7,38 og Fanndís Helgadóttir og Ötull frá Narfastöðum urðu í því þriðja.

Niðurstöður úr A úrslitum í slaktaumatölti í ungmennaflokki
Sæti Knapi Hross Aðildarfélag knapa Einkunn
1 Tekla Petersson Óríon frá Lækjamóti Svíþjóð 7,79
2 Saga Berggren Kolfinnur från Margaretehof Svíþjóð 7,38
3 Fanndís Helgadóttir Ötull frá Narfastöðum Island 7,21
4-6 Olivia Kasperczyk Tengill frá Hofi Danmark 6,96
4-6 Gabriella Stenfeldt Johansen Dans frá Álfhólum Danmark 6,96
4-6 Paloma Eklund Andersson Tangó från Zimsen Svíþjóð 6,96

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link