Telur að fulltrúar Fáks hafi verið löglegir þingfulltrúar

  • 7. desember 2020
  • Fréttir

Frá reiðhallarsýningu í Fáki í Víðidal

Á vefsíðu Hestafrétta birtist í síðustu viku ádeila um lögmæti þingfulltrúa Fáks á nýafstöðnu LH þingi. Kemur þar m.a. fram að samkvæmt lögum Fáks eigi að velja þingfulltrúa á aðalfundi félagsins sem ekki hefur verið haldinn síðan 14.maí 2019.

Svar við þessum ásökunum bárust Eiðfaxa nú í morgun og er það Sigurbjörn Magnússon sem svarar fyrir hönd Fáks að ósk Hjartar Bergstað formanns félagsins og er svarið hér fyrir neðan.

Í 12. gr. laga Fáks er fjallað um kjör fulltrúa á LH þing en þar segir: „Á ársþing LH eru formaður, framkvæmdastjóri, stjórn og formenn starfsnefnda sjálfskipaðir. Kosið er um aðra fulltrúa á aðalfundi félagsins en einungis félagar sem fá 5 atkvæði eða fleiri eru kjörgengir. Stjórn velur aðra fulltrúa.“ Skv. 12. gr. laganna er því hluti þingfundarfulltrúa sjálfkjörnir en hluti kosnir á aðalfundi.

Vegna Covid 19 veirunnar og sóttvarnarreglna hefur  ekki verið haldinn aðalfundur í ár eins og í mörgum öðrum félögum, en til stendur að halda aðalfund á næsta ári eins fljótt og auðið er. Þar sem enginn aðalfundur var haldinn og því ekki mögulegt að aðalfundur kysi þingfulltrúa eins og verið hefur þá kaus stjórn Fáks þá þingfulltrúa sem aðalfundur hefði átt að kjósa. Stjórnin fer lögum skv. með æðsta vald í málefnum félagsins á milli aðalfunda og félagsfunda sem ekki hafa verið haldnir og ekkert er framkomið sem bendir til þess að stjórnin hafi ekki haft heimild til að taka þessa ákvörðun við þær aðstæður sem nú eru til staðar.

Enn fremur má leiða þá niðurstöðu af orðlagi 12. gr. laganna að fái enginn fulltrúi fleiri en 5 atkvæði þá kjósi stjórnin fulltrúana, m.ö.o. geti aðalfundur ekki kosið þingfulltrúa þá geri stjórnin það. Með vísan til framangreinds tel ég að fulltrúar Fáks sem voru tilefndir af stjórn félagsins á LH þing hafi verið löglegir þingfulltrúar.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link