Telur þörfina á sýningarplássum vanmetna
Á þriðjudag var opnað fyrir skráningar á kynbótasýningar vorsins hér á landi. Fljótlega eftir að skráning opnaði varð fullt á allar sýningar á Suðurlandi, fyrir utan eina á Rangárbökkum í maí.
Óánægja þeirra sem ekki náðu í pláss hefur orðið greinileg á samfélagsmiðlum. Það lítur út fyrir að margir hafi reynt að skrá sig en ákveðnar sýningar selst upp þrátt fyrir að fólk hafi verið komið með plássið í körfuna hjá sér inn á greiðslusíðu RML. Því eru einhverjir sem ekki fengu pláss á þeim sýningum sem þeim hentaði best.
Vill sjá bætta þjónustu hjá RML
Hrefna María Ómarsdóttir er ein af þeim sem vakti athygli á þessu á samfélagsmiðli sínum og hafa viðbrögð frá fólki ekki staðið á sér. Telur Hrefna María vandamálið vera marglaga, ekki bara hvernig skráningarkerfið er sett upp heldur telur hún þörfina á ákveðnum stöðum og dagsetningum vera vanmetna.
„Það þarf að byrja á því að spyrja sig hver er þörfin á ákveðnum stöðum og tímum. Flestir eru að velja sér sýningar út frá stað- og tímasetningu. Þetta er eitthvað sem RML þarf að kafa betur ofan í. Annað hvort fá knapa til að senda inn óskir á hvaða sýningum þeir vilja vera eða einfaldlega hafa opinn fjölda á sýningarnar og síðan vinna út frá því,“ segir Hrefna María sem telur þörfina á sýningarplássum á Rangárbökkum í ákveðnum vikum stórlega vanmetna.
„Þá erum við farin að þjónusta knapa og eigendur. Skráningarkerfið hjá RML í núverandi mynd er bara að þjónusta RML, engan annan. Þeir taka inn allar greiðslurnar á fimm mínútum og þurfa síðan ekkert að hugsa meir. Það er ekki verið að þjónusta þá sem eru að fara nota þjónustuna sem verið er að bjóða upp á.“
Velja út frá tíma- og staðsetningu
Eins og staðan er í dag eru sex vorsýningar á Rangárbökkum, Hellu og eins og áður sagði er full skráning á þær allar fyrir utan fyrstu vikuna sem er 18. – 21. maí, þar eru 55 hross skráð en hámarksfjöldi er 90. Í heildina eru 505 hross skráð í þessum vikum á Rangárbökkum
„Þau væru í raun mikið fleiri. Fólk fór bara að panika í gær og skráði á einhverja sýningu því það var svo stressað um að fá ekki pláss yfir höfuð. Fólk er að fara keyra til Reykjavíkur og á Mið-Fossa því það fékk ekki pláss á Hellu. Knapar í dag eru langflestir að velja sér sýningar út frá staðsetningu og tímasetningu og það vilja flestir sýna á Hellu þar sem það er styðst fyrir þá að fara og brautin er góð. Ég held að hver nákvæmalega sé dómari breyti ekki öllu,” segir Hrefna María.
„Þetta er mjög alvarlegt mál. Það er ekkert verið að grínast. Fólk er búið að vera með hross í tamningu og þjálfun í kannski tvo ár á tamningarstöðvum. Leggjandi út hundruði þúsunda og síðan þegar á að fara sýna þá er ekki hægt að fá pláss á sýningu. Það er ótrúlega mikið sem liggur þarna undir.“
Átt ekki frátekið pláss fyrr en eftir greiðsluna
Hrefna María, eins og fleiri, gagnrýnir líka skráningarkerfið sjálft og virkni þess en eins og kerfið virkar í dag á hrossið ekki frátekið pláss fyrr en greiðslu er lokið.
„Það er galli og eru til alls konar á lausnir á því sem eru í notkun annars staðar. Mér finnst samt mikilvægara að RML leggi meiri áherslu á að þjónusta sýnendur og eigendur hrossa með því að hafa fjöldann opinn eða biðji knapa um að senda inn beiðnir um ákveðnar sýningar. RML vinni síðan úr því og reyni að þjónusta viðskiptavini sína betur á þeim forsendum.“
Agnar og Kvistur á nýju hallarmeti
„Hún bjó yfir gríðarlegri orku og getu“
Enn þarf að fresta skráningum á kynbótasýningar
Ákveðnir byggingarþættir tengjast aukinni burðargetu