Telur tugi hrossa hafa drepist og óvíst um yfir hundrað
Í viðtali við fréttavef RÚV segir Ingunn Reynisdóttir, dýralæknir, frá því að tugir hrossa hafi drepist og ennþá eigi eftir að finna fleiri hross í Húnavatnssýslum.
„Já, því miður. Þetta eru, ef ég skýt laust á það núna, þá eru þetta einhverjir tugir sem eru dauðir. Yfir hundrað hross í austursýslunni, segja mér björgunarsveitarmenn, eru óvís, ekki fundin ennþá. Þetta er á tugum bæja sem hross hafa grafist í fönn og svona eitt til sex dauð,“ sagði Ingunn á Morgunvaktinni á Rás 1 í morgun.
Fjöldi hrossa hafi örmagnast: „Svo er ég að fá tilfelli sem ég hef bara ekki verið að upplifa áður. Það eru hestar sem hafa ekki getað migið og skitið og eru með skaufann lamaðan úti og allir orðnir bólgnir og bláir. Og svo eru lungnabólgur og hrossasótt og svona ýmislegt.“
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH