Það bætist í hóp listamanna sem koma fram þann 8.febrúar

  • 17. janúar 2020
  • Fréttir
Miðasala í fullum gangi

Eins og áður hefur verið sagt frá að þá verður hátíðardagur í Fákaseli laugardaginn 8.febrúar. Þá um daginn frá klukkan 11:00-16:00 verður sýnikennsla þar sem farið verður yfir uppbyggingu hests og knapa. Viðtal sem Eiðfaxi tók við Julio Borba, einn af forsvarsmönnum sýningarinnar,  má lesa með því að smella hér.

Nú hefur bæst í veisluna því um kvöldið fer fram Gala sýning og á henni munu margir knapar og hestar koma fram. Þá mun hin frábæra söngkona Jóhanna Guðrún ásamt manni sínum, gítarleikaranum Davíð Sigurgeirssyni, koma fram og syngja fyrir sýningargesti. En þau munu bæði flytja tónlist á sviði í reiðhöll á meðan sýningin fer fram, og einnig munu þau koma fram að sýningu lokinni í veislusal Fákasels.

Miðasala á viðburðinn er í fullum gangi og hægt er að kaupa miða á Tix.is með því að smella hér.

Ljósmynd sem fylgir fréttinni tók Ingela Bjurenborg

 

Jóhanna Guðrún Jónsdóttir

Jóhanna Guðrún Jónsdóttir

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar