„Það er geggjað að sitja á þessum hesti“
Eyrún Ýr Pálsdóttir og Hrannar frá Flugumýri unnu fimmganginn í Meistaradeildinni og stóðu langefst eftir úrslitin með 7.83 í einkunn. Eyrún keppir fyrir lið Top Reiter sem var stigahæsta lið kvöldsins með alla knapa í úrslitum, þau Eyrúnu, Teit Árnason og Árna Björn Pálsson.
Kári Steinsson hitti á þau Eyrúnu Ýri og Teit eftir úrslitin og tók þau tali. Viðtalið er hægt að sjá í spilaranum hér fyrir neðan.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH