Það hávaðarok og rigning í Finnlandi
Við vorum að fá þær fréttir að það rignir eldi og brennisteini með hávaðaroki á Norðurlandamótinu í Finnlandi. Keppni í skeiði sem átti að hefjast nú fyrir stundu hefur verið frestað um tvo tíma vegna veðurs. Við fylgjumst með og segjum fréttir af skeiðkeppninni um leið og þær berast.