„Það mun enginn eiga séns í Elvar og Fjalladís“
Nú styttist í Heimsmeistaramót Íslenska hestsins í Hollandi en minna en vika er til stefnu. Af því tilefni fékk Eiðfaxi nokkra hestamenn til þess að spá í spilin með sér um hvaða knapi og hestur færu með sigur af hólmi í hverri grein.
Nú er komið að hestakonunni Eddu Rún Ragnarsdóttur.
Fullorðnir:
Tölt T1:
Jóhanna Margrét og Bárður frá Melabergi vinna, Jamila Berg og Toppur og Viðar Ingólfsson og Þór verða jöfn í 2.sæti.
Fjórgangur V1:
Jóhanna Margrét Snorradóttir og Bárður frá Melabergi vinna sannfærandi sigur.
Fimmgangur F1:
Sara Sigurbjörnsdóttir og Flóki frá Oddhóli vinna á skeið útfærslum sínum.
Slaktaumatölt T2:
Það verður erfitt að eiga við Julie Cristiansen og Felix frá Blesastöðum 1A fyrrum Heimsmeistarapar, hún toppar alltaf á réttum tíma.
Gæðingaskeið:
Það mun enginn eiga séns í Elvar Þormarsson og Fjalladís frá Fornusöndum.
250 m. skeið:
Veit að Alexander Fedorov og Hrólfur frá Hafnarfirði verða hættulegir enn Íslendingarnir verða í toppbaráttunni við hann.
100 m. skeið:
Hans Þór Hilmarsson og Jarl frá Þóroddsstöðum eru öruggir.
Samanlagðar fjórgangsgreinar:
Jóhanna Margrét og Bárður og Stjáni Magg og Óskar frá Lindeberg verða bæði sterk.
Samanlagðar Fimmgangsgreinar:
Þorgeir Ólafsson Vinnur samanlagðan með hestinn sinn Goðastein frá Haukagili sem og silfur í fimmgang.
Ungmenni:
Tölt T1:
Herdís Björg og Kvarði frá Pulu.
Fjórgangur V1:
Okkar maður Jón Ársæll og Frár Frá Sandhól.
Fimmgangur F1:
Glódís Rún og Salka frá Efri Brú.
Slaktaumatölt T2:
Freya Spee og Djorn frá Nýttland.
Gæðingaskeið:
Bensi og Leira-Björk frá Naustum.
100 m. skeið:
Sigríður Ingibjörg og Ylfa Frá Miðengi.
Samanlagðar fjórgangsgreinar:
Jón Ársæll og Frár Frá Sandhól
Ég vill nota tækifærið og óska öllum góðs gengis á mótinu.
Áfram Ísland 

Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH