Þær sænsku unnu sér þátttökurétt í A-úrslitum í slaktaumatölti
Næst síðasti keppnisdagur Norðurlandsmóts er nú í fullum gangi og nú seinni partinn fara fram hin ýmsu B-úrslit. Hægt er að horfa á Norðurlandamótið í beinni á EiðfaxaTV en allar upplýsingar, ráslista og dagskrá er hægt að sjá í HorseDay.
Í ungmennaflokki var það Tekla Petersson á Óríon frá Lækjamóti sem sigraði keppinaut sína með yfirburðum með einkunnina 7,71, Tekla keppir fyrir hönd Svíþjóðar. Landa hennar, Elin Nilsson, gerði það sama í fullorðinsflokki þegar hún og Þokkadís frá Selfossi unnu með einkunnina 7,33.
Fullorðnir
| B úrslit | |||
| Sæti | Knapi | Hross | Einkunn |
| 6 | Elin Nilsson | Þokkadís frá Selfossi | 7,33 |
| 7-8 | Magnus Skulason | Framherji frá Skipaskaga | 6,88 |
| 7-8 | Bjarne Fossan | Valíant fra Fossan | 6,88 |
| 9 | Eline Kirkholt Bengtsen | Pistill frá Litlu-Brekku | 6,42 |
| 10 | Veera Sirén | Spaði frá Skarði | 6,21 |
Ungmenni
| B úrslit | |||
| Sæti | Knapi | Hross | Einkunn |
| 6 | Tekla Petersson | Óríon frá Lækjamóti | 7,71 |
| 7 | Frøydis Musdalslien | Kormákur frá Miðhrauni | 6,79 |
| 8-9 | Palma Sandlau Jacobsen | Búi frá Húsavík | 6,67 |
| 8-9 | Silja Stefansdottir | Magni fra Kvalen | 6,67 |
| 10 | Nathalie Røe-Skavnes | Nói fra Jakobsgården | 6,38 |
Þær sænsku unnu sér þátttökurétt í A-úrslitum í slaktaumatölti
Endurtók leikinn tíu árum seinna