Þakkir fyrir það sem vel er gert
Eftirfarandi tilkynning barst frá Einari Öder Magnússyni, landsliðsstjóra:
„Þar sem undirritaður lendir í þvi að vera miðpunktur leiðinlegrar og ósanngjarnar fjölmiðla umræðu, á mjög óheppilegum tímapunkti þegar Landslið íslands í hestaíþróttum er á lokaspretti í undirbúningi fyrir HM. Vill undirritaður koma eftirfarandi á framfæri:
Þakklæti til allra þeirra fjölmiðla sem virtu ósk okkar um þagmælsku við undirbúning á kynningu á Landsliði Ísland í hestaíþróttum fyrir HM. Af ýmsum ástæðum sem ekki verða raktar hér var mikilvægt að kynning lansliðisins færi fram á ákveðnum tímapunkti og við réttar aðstæður eins og landsliðsnefnd og liðsstjórar höfðu lagt upp með.
Ég harma óheppileg orð og setningar sem auðvelt var að túlka á ósanngjarnan hátt en um leið minni ég sjálfan mig og aðra á það að aldrei skal birta greinar né viðtöl nema að vel undirbúnu og yfirlögðu ráð. Af minni hálfu er þessu máli lokið en um leið ítreka ég það sem svo oft hefur komið fram af minni hálfu en það er þakklæti til fjölmiðla fyrir gott samstarf þ.m.t. Hestafréttir. Það er fátt sem er Íslenska hestinum jafn mikilvægt og jákvæð umræða um Íslenska hestinn í fjölmiðlum höldum því áfram það er okkur öllum aðdáendum hestsins ómetanlegur styrkur.
Horfum fram á veginn. Hittumst á HM í Austurríki í eigin persónu eða gegnum fjölmiðla. Áfram Ísland!
Einar Öder Magnússon. Annar liðstjóri íselnska landsliðsins.“
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH