Þáttur um Equsana-deildina hefur göngu sína á Stöð 2 Sport
Umfjöllun um íslenskar hestaíþróttir ryður sér aftur til rúms á Stöð 2 Sport í kvöld en þá verður fyrsti þátturinn um áhugamannadeild Spretts, Equsana-deildina, sýndur.
Keppni í deildinni hófst á fimmtudagskvöldið síðastliðið og verður fylgst með keppninni í þætti kvöldsins og vitanlega rætt við keppendur.
Alls eru fjögur keppniskvöld á mótaröðinni, annan hvern fimmtudag, sem þýðir að næst verður keppt á fimmtudaginn 20. febrúar. Keppt er í Samskipahöllinni í Kópavogi.
Gísli Guðjónsson, ritstjóri Eiðfaxa, er umsjónarmaður þáttarins ásamt Telmu Tómasson.
Þátturinn er á dagskrá Stöðvar 2 Sports klukkan 19.20.
Með því að smella hér má horfa á brot úr þætti kvöldsins. Þar er rætt við Auði Stefánsdóttur og Hermann Arason hjá keppnisliðinu Hest.is en viðtalið var tekið skömmu fyrir fyrsta keppniskvöldið.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH