„The Social License to operate“ eitt af aðal viðfangsefnum ráðstefnunnar
The Social License to operate eða leyfi samfélagsins til að starfa er hugtak sem er vaxa hratt erlendis og hefur verið mikið í umræðunni. Sífellt fleiri hestasamtök um allan heim hafa hafið umræðu um þetta hugtak og verður það eitt af aðal viðfangsefnum FEIF. Þetta hugtak á ekki bara við hestamennsku heldur velferð sem tengist öllum dýrum og er sprottin uppfrá breyttu viðhorfi samfélagsins á dýranotkun. Hvað hestaheiminn varðar snýst þetta um velferð og notkun hesta til íþrótta- og tómstundaiðkunar. Með hugtakinu The Social License to operate er átt við óbeinan samning á milli almennings og atvinnugreinar sem hagnýtir dýr til skemmtunar eða atvinnusköpunar. Ef almenningur sættir sig ekki við starfsemina eins og hún er orðin geta stjórnvöld gripið inn í til þess að vernda velferð dýranna.
Þetta hugtak verður tekið fyrir á ráðstefnu FEIF nú í byrjun febrúar. Vegna þess hversu mikilvægt málefni þetta er er aðalfyrirlesari FEIF ráðstefnunnar Dr. Micael Weishaupt, Dýralæknaháskólanum í Zürich. Mun hann tala um þetta málefni og útskýra hvers vegna það er mikilvægt og hvernig við hestamenn getum tekið á því. Hann mun einnig fara yfir hversu mikilvægt það er að við sýnum hvernig við forgangsröðum velferð hestsins og erum meðvituð um þá ábyrgð að sýna öðrum hvað við gerum og hvers vegna.
Hér má sjá meira um helstu viðfangsefni á FEIF ráðstefnunni.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH