Þessir sátu heima
Fyrir nokkrum dögum var birtur hér listi yfir þá hesta sem sýndir voru sem klárhestar á Landsmótum áranna 1994-2012 og fluttir voru út. Á listanum eru hestar sem sýndir voru sem klárhestar á Landsmóti þó svo að þeir hafi seinna verið sýndir með skeiði. Þegar fjöldi afkvæma þeirra hér á landi er borin við fjölda afkvæma hjá þeim hestum sem eftir voru hér á landi kemur eftirfarandi í ljós.
Að meðaltali áttu hestarnir sem fluttu út 12 afkvæmi á ári meðan þeir voru hér á landi en hestarnir sem eftir urðu hér eiga að meðaltali um helmingi fleiri afkvæmi á ári eða 23 alls. Þegar heildarfjöldi afkvæma þessara hópa er borinn saman þá kemur í ljós að útfluttu hestarnir eiga að meðaltali 77 afkvæmi en hestarnir sem urðu eftir heima 289 afkvæmi.
Þetta rennir stoðum undir að þeir sem flognir eru hafi oft á tíðum verið seldir vegna dræmrar notkunar hér á landi. Það er jú grundvöllur þess að hægt sé að halda hestum hér heima að ræktendur vilji nota þá. Til að tryggja það að bestu klárhestarnir fari ekki út verða íslenskir ræktendur að vera tilbúnir að nota þá.
Þeir hestar sem eftir urðu eru eftirtaldir:
IS1990184730 Andvari frá Ey I
IS1990184419 Víkingur frá Voðmúlastöðum
IS1988186461 Mjölnir frá Sandhólaferju
IS1994158719 Breki frá Hjalla
IS1994184184 Dynur frá Hvammi
IS1993187336 Tývar frá Kjartansstöðum
IS1991157345 Hugi frá Hafsteinsstöðum
IS1996187336 Töfri frá Kjartansstöðum
IS1995184621 Stæll frá Miðkoti
IS1998186906 Þristur frá Feti
IS1998184713 Aron frá Strandarhöfði
IS1997125217 Glóðar frá Reykjavík
IS1997156109 Hrymur frá Hofi
IS2000187051 Gígjar frá Auðsholtshjáleigu
IS2000188473 Borði frá Fellskoti
IS1999187590 Flipi frá Litlu-Sandvík
IS1999181675 Leiknir frá Vakurstöðum
IS1998187140 Ægir frá Litlalandi
IS1997158469 Hágangur frá Narfastöðum
IS2002136409 Auður frá Lundum II
IS2002187812 Krákur frá Blesastöðum 1A
IS2001165890 Kaspar frá Kommu
IS2000184814 Eldjárn frá Tjaldhólum
IS2004165890 Kappi frá Kommu
IS2003182454 Glóðafeykir frá Halakoti
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH