„Þetta er hörkukeppni“

  • 24. janúar 2012
  • Fréttir
„Þetta er hörkukeppni“

Hinrik Bragason átti velgengni að fagna á síðasta ári, enda einn af fremstu knöpum landsins, og mætir sterkur til leiks í Meistaradeildina. Hann segist hlakka til fjórgangskeppninnar á fimmtudagskvöld. „Í Meistaradeildina mæta margir af sterkustu hestum og knöpum landsins. Þetta er hörkukeppni. Margir hestanna sem skráðir eru í fjórganginn eru reyndir á keppnisvellinum, en eitthvað er um ný hæfileikahross. Sjálfur mæti ég með nýjan hest, Ketil frá Kvistum, stóðhest á sjöunda vetur. Hulda [Gústafsdóttir] hefur verið með hestinn í þjálfun það sem af er vetri, en ég tók við honum fyrir um tveimur vikum til að undirbúa hann fyrir keppnina. Ketill er ungur, lofandi hestur, sem er að stíga sín fyrstu skref í keppni.“

Hinrik fer fyrir liðinu Árbakki/Norður-Götur, þar sem eru innanborðs stórknapinn Hulda Gústafsdóttir og tveir ungir og efnilegir, þeir Teitur Árnason og Ragnar Tómasson. „Hulda keppir á Sveigi frá Varmadal í fjórgangnum og Teitur á Hængi frá Hæl,“ segir Hinrik, og bætir því við að hestarnir séu í prýðis þjálfun þrátt fyrir erfitt tíðarfar og færi það sem af er vetri.

Þrír liðsmenn af fjórum taka þátt í keppninni hverju sinni og fer jafnan eftir styrkleika og hestakosti hverjum liðsstjórinn teflir fram hverju sinni.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link