„Þetta verður gífurlega sterkur ungmennaflokkur“

  • 25. maí 2024
  • Fréttir
Viðtal við fjölskylduna í Pulu

Það var stórt ár í fyrra hjá fjölskyldunni í Pulu en Herdís Björg Jóhannsdóttir átti magnað ár og varð m.a. heimsmeistari í tölti í ungmennaflokki á heimaræktuðum hesti, Kvarða frá Pulu. Á Pulu reka þau Jóhann Kristinn Ragnarsson og Theódóra Þorvaldsdóttir alhliða þjálfunarstöð og bjóða þau einnig upp á rekstrarþjálfun sem hefur notið mikilla vinsælda.

“Veturinn var fínn. Jói var mikið í flugvél að ferðast til og frá Þýskalandi en hann kenndi mjög mikið í vetur. Það var mjög mikil aðsókn í hlaupin í vetur en það er nánast stöðug traffík af fólki með allar týpur af hrossum. Hér mæta úrslitahestar frá Landsmótum og Íslandsmótum, ferðahestar, reiðhestar og já bara öll flóran,” segir Theódóra.

Tóku þátt í deildunum í vetur

Þau Jóhann og Theódóra voru með lið í Meistaradeildinni í vetur ásamt Páli Braga Hólmarssyni, liðið Austurkot/Pula, en Jói hefur lengi tekið þátt í deildinni og verið vinsæll villiköttur í skeiðgreinar.

“Það gekk ágætlega í deildinni í vetur. Við vorum með lið í fyrsta skipti, ofboðslega skemmtilegt lið. Knaparnir voru allir að koma inn í deildina aftur. Það voru smá mistök að gerast í vetur en það verður gaman að sjá næsta vetur. Ég býst við að við verðum aftur með lið og með sama mannskapinn. Það verður gaman að koma aftur reynslunni ríkari,” segir Jóhann en hann m.a. endaði í 2. sæti í gæðingaskeiðinu og í 150 m. skeiðinu í Meistaradeildinni á Þórvöru frá Lækjarbotnum.

Herdís keppti í Meistaradeild ungmenna í vetur. Hún lenti í því óhappi að aðalkeppnishesturinn hennar veiktist í byrjun vetrar og því fór veturinn ekki eins og hún hafði lagt upp með.

“Veturinn var bara fínn. Ég var smá óheppin í byrjun vetrar en þá veiktist aðalhesturinn minn. Hann var ekki nothæfur í keppnirnar í vetur svo það var smá vesen og þurfti ég svolítið að redda mér á auka hestunum sem ég var kannski ekki búin að undirbúa jafn mikið,” segir Herdís en lítur björtum augum til sumarsins nú þegar allir eru við hestaheilsu.

Lítil ræktun

Eins og áður kom fram varð Herdís Björg heimsmeistari í tölti á heimaræktuðum hesti, honum Kvarða frá Pulu. Þau í Pulu eru að fá nokkur folöld á ári en í sumar verða þau fimm talsins.

“Ræktunin byggir mikið á mömmu Kvarða, Kempu frá Austvaðsholti 1. Hún hefur verið að gefa okkur mjög fín hross. Við erum með mjög efnilegan hest frá okkur hann Svarta-Skugga frá Pulu. Hann er undan Veg frá Kagaðarhóli og Sóldísi frá Pulu, fyrstu verðlauna klárhryssa undan Sædyn frá Múla. Við erum mjög spennt fyrir honum og hlökkum til að sýna hann í vor,” segir Theódóra.

Stefnan m.a. sett á ungmenna- og A flokkinn á Landsmóti

Eins og svo margir aðrir stefna þau Jóhann og Herdísi með nokkur hross í úrtöku í sumar. Herdísi stefnir með sjö vetra Hringsson, Augastein frá Fákshólum, í ungmennaflokkinn en þau kepptu í fyrsta sinn saman í vetur í gæðingakeppni Blue Lagoon deildarinnar og unnu með 8,57 í einkunn.

“Ég er mjög spennt fyrir sumrinu með honum. Þetta verður gífurlega sterkur ungmennaflokkur en það mætir mikið af hestum sem hafa unnið Landsmót áður og líka sem voru í úrslitum á síðasta Landsmóti í B flokki. Við Augasteinn stefnum bara á að ná eins langt og við getum,” segir Herdís en hún keppir fyrir hestamannafélagið Sprett.

Jóhann stefnir með Kolbein frá Hrafnsholti í A flokkinn en Jóhann hefur áttu góðu gengi að fagna í A-flokkskeppnum Landsmóts þar sem hann hefur nokkrum sinnum landað silfri en þó aldrei gullið en hans tími er kannski kominn?

“Það verður gaman að sjá hvernig Kolbeinn kemur undan vetri en ég byrjaði með hann fyrir ári síðan. Þetta er hestur með reynslu og hefur farið mjög hátt í A flokki og hefur alla burði til að gera mjög vel. Hann er svakalega vakur en við vorum að fá 9,0 og upp úr fyrir skeið í fyrra. Hann er rúmur, flottur á tölti og hinar gangtegundirnar góðar líka. Stefnan er sett á A úrslitin, engin spurning,” segir Jóhann að lokum.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link