Þjálfunarástand í Meistaradeild

  • 9. janúar 2013
  • Fréttir
Samkvæmt öllum þjálfunarvísindum tekur það að lágmarki um sex mánuði að koma hesti í þokkalegt keppnisform

Fyrsta mót Meistaradeildar í hestaíþróttum er á dagskrá 31. janúar. Þá verður keppt í fjórgangi. Allt frá því að Meistaradeildin hófst fyrir um áratug hafa ýmsir spurt hvort keppnishestarnir séu komnir í nægilega þjálfun á þessum árstíma til að takast á við svo krefjandi verkefni sem gangtegundakeppni er.

Í fjórgangi þurfa hestarnir ekki einungis að keppa á fjórum gangtegundum, heldur einnig á hægu og hröðu tölti. Hvort tveggja útheimtir mikla orku. Til að hesturinn geti staðið undir þeim kröfum sem til hans eru gerðar, og án þess að beri skaða af, þarf hann að vera vel undir búinn og þjálfaður, andlega og líkamlega.

Langflest keppnishross hér á landi fá frí á haustin, allt frá nokkrum vikum upp í nokkra mánuði. Samkvæmt öllum þjálfunarvísindum tekur það að lágmarki um sex mánuði að koma hesti í þokkalegt keppnisform. Erlendis er þekkt viðmið að það taki sex ár að þjálfa dressúr hest í það form að hann sé tilbúinn til að takast á við verkefni á efsta stigi. Eða eitt þúsund og átta hundruð þjálfunarklukkustundir sem deilast á þrjú hundruð daga á ári í sex ár, jafnt og þétt án þess að löng hlé verði á þjálfuninni.

Samkvæmt þessu er því hæpið að öll þau hross sem taka þátt í Meistaradeildinni 31. janúar séu komin í „alvöru“ keppnisform. Því er eðlilegt að spurt sé hvort einhver þeirra bíði jafnvel skaða af, einkum þau sem fara í úrslit. Svo ekki sé talað um hross sem þarf að fara í tvenn úrslit, B og A. Fjallað verður um þjálfun keppnishrossa í Hestablaðinu sem kemur út 30. janúar.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link