Þjóðlegar kræsingar og kruðerí
Það var líf og fjör á þjóðarkvöldi Heimsmeistaramótsins í kvöld, þegar aðilar þátttökuþjóðanna buðu upp á dýrindis góðgæti.
Kjötmeti, brauð og sælgæti af ýmsum gerðum mátti nálgast í veislutjaldi St. Radegund. Fransmenn höfðu á borðum mjúka osta og vín, danir buðu m.a. öl og kæfu, austurrískir týrólakarlar og svisslenskar hefðardömur slóu heldur ekki slöku við, bæði buðu þau osta, kjöt og súkkulaði. Þá hafði íslenska sveitin unnið hörðum höndum í dag við að smyrja rúgbrauð, bæði með hangikjeti og laxi. Því var svo skolað niður með blöndu af malti og appelsíni og bita af prinspóló í eftirrétt.
Svo var dansað við undirspil og söng austurrískrar stuðsveitar.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH