Þjóðverjar sýndu mátt sinn og megin

  • 26. maí 2015
  • Fréttir
Glæsilegt íþróttamót í Kronshof um helgina gaf vísbendingar um keppendur á næsta Heimsmeistaramóti.

Um 2000 áhorfendur mættu á hestabúgarðinn Kronshof til að fylgjast með sterku íþróttamót sem þar fór fram um liðna helgi. Gaf árangur þátttakenda þar ákveðnar vísbendingar um keppendur á komandi Heimsmeistaramóti.

Frauke  Schenzel, ríkjandi heimsmeistari í fjórgangi og staðarhaldari á Kronshof, orðið vör við auknum áhuga á íslensku hestaíþróttinni í kjölfari Heimsmeistaramótsins sem haldið var í Berlín fyrir tveimur árum. Viðtal við Frauke má finna í næsta tölublaði Eiðfaxa, sem kemur út í vikunni.

En að mótinu. Lisa Schürger var afar sigursæl á mótinu. Hún vann töltkeppni mótsins á Verði frá Sturlureykjum 2 með einkunnina 8 í lokaeinkunn, en Vörður þessi vakti athygli á síðasta Landsmóti, í unglingaflokki undir stjórn Konráðs Axel Gylfasonar. Hann fór svo utan síðasumars í fyrra. Lisa tefldi fram Kjalari frá Strandarhjáleigu í fjórgangi og sigraði þar með 7,56 í lokaeinkunn. Hún mætti svo með Bassa frá Efri-Fitjum í fimmgangskeppnina og sigraði hana með 7,26 í lokaeinkunn. Lisa er því til alls líkleg í sumar.

Jens Füchtenschnieder á hryssunni Rúnu frá Tröllastaðum fór með sigur af hólmi í fljúgandi skeiði ( 7,46 sek.) og 250 metra (23.92 sek.). Í gæðingaskeiði sigraði Nils-Christian Larsen frá Noregi á Dynfara frá Steinnesi með 8,38 en Beggi Eggertsson hlaut 8,34 á Lotus frá Aldenghoor og varð annar.

Frauke Schenzel kom sá og sigraði slaktaumatölt á hryssunni Óskadís from Habichtswald með glæsilega 8,29 í lokaeinkunn. Hún sigraði þar meðal annars ríkjandi heimsmeistara í greininni, Julie Christiansen frá Danmörku á Straumi frá Seljabrekku.

Í flokki yngri knapa fór Johanna Beuk með sigur af hólmi í fjórgangi á Merkur frá Birkelund. Lea Brill sigraði töltið á Krolgrími from Neddernhof. Fabienne Greber sigraði slaktaumatölt á Hágangi from Kreiswald og Marvin Heinze sigraði fimmgang á Myrkva from Quillerhof.

Í fljúgandi skeiði vöktu Svenja Carbon á Svartur of Faxaból athygli en þau fóru sprettin á 7.76 sekúndum. Jannik Hippe á Vaðli frá Íbishóli sigraði gæðingaskeið ungknapa með 7,13.

 Öll úrslit mótsins má nálgast hér.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link