Þoka frá Hólum

  • 30. október 2012
  • Fréttir
Þoka frá Hólum

Þoka frá Hólum er handhafi Glettubikarsins í ár en hún er með  125 stig í aðaleinkunn kynbótamats. Í ár uppfylla níu hryssur lágmörkin og stendur Þoka þar efst. Þoka er fædd 1993 en ræktandi Þoku er Hólaskóli en í dag er hún í eigu Ingar og Ingu Jensen sem búsett eru í Svíþjóð. Þoka er hins vegar hér á landi í umsjón Þórarins Eymundssonar.

Ingar og Inga Jensen eignuðust Þoku árið 2001. “Við vorum lengi búin að leita að “ofur” meri til að verða okkar aðal ræktunarhryssa á Íslandi. Okkur leist strax vel á Þoku, hún var með fyrstu verðlaun og okkur fannst ættirnar sem að henni standa mjög spennandi, sérstaklega móðurættin” segir Ingar, en Þoka er undan Vafa frá Kýrholti og heiðursverðlaunahryssuni Þrá frá Hólum. 
 
Þau Ingar og Inga vanda vel val á stóðhesti á móti Þoku “Við erum ekki mikið fyrir það að taka áhættu og þess vegna veljum við alltaf hátt dæmda stóðhesta og þá sérstaklega stóðhesta með gott tölt eða stóðhesta sem hafa sannað sig með því að skila góðum afkvæmum. Það er auðvitað ekki nóg að hafa einungis háa einkunn okkur þarf líka að líka við þá.” segir Ingar en síðustu ár hefur Þoku verið haldið undir Orra frá Þúfu, Aron frá Strandarhöfða, Keili frá Miðsitju, Gust frá Hóli, Álf frá Selfossi og Krák frá Blesastöðum 1A.  
 
Þoka hefur verið að skila miklum hæfileikahrossum inn í hrossaræktina á Íslandi en afkvæmi hennar hafa bæði staðið sig vel í keppni og hlotið háa kynbótadóma. Elsta afkvæmi Þoku hún Þóra frá Prestbæ sem er úr ræktun Ingu og Ingars, stóð efts í elsta flokk hryssa á Landsmótinu á Vindheimamelum 2011. Þegar þau eru innt eftir því hvað það sé sem afkvæmi Þoku eiga sameiginlegt með henni segir Ingar það vera hugrekkið. “Þau eru mjög sjálfsörugg og hugrökk en það er Þoka einnig. Afkvæmi Þoku eru með rosalega góðar og öruggar gangtegundir og mjög góð gangskil”. Ingar og Inga leggja mikla áherslu á að afkvæmi Þoku njóti góðrar tamningar og  þjálfunar en þau sem tamin jafa verið hafa öll verið í tamningu og þjálfun hjá Þórarni Eymundssyni. 
 
“Við ætlum okkur ekki að halda öllum afkvæmum hennar Þoku fyrir okkur en við viljum þó sjá þau vaxa úr grasi og vonandi að þau geti verið sýnd í kynbótadómi. Við vonumst einnig til að þau eigi einnig eftir að nýtast í keppni eins og t.d. Þeyr og Þóra. En er ræktunin hjá þeim Ingar og Ingu stór? “Á Íslandi erum við einungis að rækta undan þeim mæðgum Þoku og Þóru og við ætlum okkur ekki að vera með stóra ræktun heldur ætlum við meira að einblína á gæðin. Í Svíþjóð eigum við fimm merar með fyrstu verðlaun og ætlum við að nota einhverjar af þeim í ræktun. Við fluttum Þilju, dóttir Þoku,út árið 2006 og ætlum við að halda henni á næsta ári” en Ingar og Inga ríða sjálf út og eru því með nokkra keppnishesta sem þau geta notið. 
 
Afkvæmi Þoku:
(Afkvæmi / Faðir / Sköpulag / Kostir / Aðaleinkunn
 
  • Þóra       Orri frá Þúfu   8,31 / 9,08 / 8,77
  • Þeyr       Aron frá Strandarhöfði   8,23 / 8,62 / 8,46
  • Þilja        Keilir frá Miðsitju   8,13 / 8,19 / 8,17
  • Þrönn     Gustur frá Hóli   8,13 / 8,43 / 8,31
  • Þota        Orri frá Þúfu   8,33 / 7,61 / 7,90
  • Þórálfur   Álfur frá Selfossi
  • Þórdís      Orri frá Þúfu
  • Þorlákur   Krákur frá Blesastöðum 1A

Umfjöllun er um heiðursverðlaunahryssurnar 2012 í 7. tölublaði Eiðfaxa. Áskrifendur Eiðfaxa geta nú nálgast blaðið  í vefútgáfunni hér.

Þeir áskrifendur sem hafa ekki enn opnað fyrir sinn aðgang að rafræna blaðinu geta gert það hér. Þegar skráningu er lokið eru áskrifendur beðnir um að senda notendanafnið á netfangið [email protected]. Þá munum við opna fyrir aðgang að vefútgáfunni.
 
Hægt er að gerast áskrifandi að í Eiðfaxa í gegnum síma 588-2525.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link