Þórarinn Eymundsson með sýnikennslu í Sörla
Sunnudaginn 24.janúar n.k. mun Félag tamningamanna, í samvinnu við hestamannafélagið Sörla, standa fyrir kennslusýningu í reiðhöllinni í Sörla kl. 16:00.
Þar mun Þórarinn Eymundsson tamningameistari glíma við erfið vandamál sem hestamenn þurfa að eiga við. Þórarinn er einn þekktasti knapi og reiðkennari landsins og margfaldur Íslands- og heimsmeistari.
Sýningin er öllum opin og er miðaverði stillt í hóf, aðeins kr. 1.500, en skuldlausir félagar í FT og Sörla fá miðann á 1.000 kr.
Kaffiveitingar á staðnum – allir velkomnir!
Félag tamningamanna.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Fjórðungsmót Austurlands á næsta ári